ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Lífshlaupið 2019 hefst 6. febrúar.

Lífshlaupið 2019 hefst 6. febrúar.

02/02/19

lifshl

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • vinnustaðakeppni frá 6. – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • framhaldsskólakeppni frá 6. –  19. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • grunnskólakeppni frá 6. – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Eins og ávalt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.

Skráning er hafin og um að gera að taka þátt frá upphafi. Skráningarferlið er einfalt og þægilegt. Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag. Einnig er auðvelt að ná í hreyfinguna sína úr Strava og Runkeeper fyrir þá sem það nota.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Kristín Birna Ólafsdóttir, verkefnastjóri Almenningsíþróttasviðs, kristino@isi.is eða í síma 5144000

SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á  www.lifshlaupid.is

Edit Content
Edit Content
Edit Content