ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Landsbankamót í Bjarnalaug fyrir börn 10 ára og yngri og uppskeruhátíð sundmanna.

Landsbankamót í Bjarnalaug fyrir börn 10 ára og yngri og uppskeruhátíð sundmanna.

14/11/18

20181113_172553

þriðjudaginn 13. nóvember var haldið Landsbankamót í Bjarnalaug fyrir börn 10 ára og yngri og s
trax á eftir var uppskeruhátíð sundmanna haldin í Brekkubæjarskóla.

Um 26 krakkar 7 til 10 ára tóku þátt í mótinu og syntu annaðhvort 25m eða 50m skrið og bringusund.
Margir efnilegir sundmenn sýndu að þau hafa náð miklum framförum í vetur og þau höfðu gaman af því að sýna foreldrum og öðrum
áhorfendum árangur sinn.
Ekki síður fannst þeim gaman að fá heimsókn eldri sundmanna en þau Brynhildur, Sindri, Enrique, Erlend, Ásgerður og  Atli Vikar
stungu sér í laugina og sýndu þeim nokkra spretti og tækni við sundið. Eftir mótið fóru þau svo í leiki með ungu sundmönnunum í lauginni.
Eftir mótið mættu krakkarnir svo á uppskeruhátíð sem haldin var í Brekkubæjarskóla og þar fengu þau öll þáttökuverðlaun.

 

Viðurkenningar voru veittar til eldri sundmanna.
Sundmaður Akraness Brynhildur Traustadóttir
Brynhildur varð íslandsmeistari í 1500m skriðsundi, hún varð önnur í 200m skriðsundi og þriðja
í 400m skriðsundi. Hún keppti einnig á NM á Íslandi 2018.Brynhildur æfir vel, og
er góð fyrirmynd og félaginu til sóma.

 

 

 

 

Félagabikarinn fékk Atli Vikar Ingimundarsson og er hann vel að honum komin
. Atli hefur verið vítamínsprauta fyrir aðra sundmenn á bakkanum og í lauginni,
hann heldur vel utanum krakkana, duglegur að hvetja þau og hefur staðið
fyrir skemmtilegum bakkaupphitunum á mótum.

Bikarinn er veittur til minningar um þá Arnar Frey Sigurðsson og Karl Kristinn Kristjánsson.

 

 

 

Ingunnabikarinn er veittur fyrir stigahæsta bringusundið 12 ára og yngri
og er gefinn til minningar um Ingunni Guðlaugsdóttur

Bikarinn hafnaði hjá Aldís Thea Daníelsdóttir Glad fyrir
200 bringusund á tímanun 3.31,45 sem gera 284 fina stig.

 

 

 

Viðurkenningu fyrir bestu ástundun og framfarir fengu :
Meyjur: Helga Rós Ingimarsdóttir
Sveinar: Mateuz Kuptel
Telpur: Guðbjörg Bjartey Guðmundsdótttir
Drengir: Kristján Magnusson
Stúlkur: Lára Jakobína Gunnarsdóttir
Piltar: Enrique Snær Llorens

 

 

Viðurkenningu fyrir stigahæstu sundin hlutu:
Meyjur: Aldís Thea Daníelsdóttir Glad  284 stig, 200 bringusund  3.31.45 (50m laug)
Sveinar: Guðbjarni Sigþórsson             281 stig, 100 skriðsund    1.11.58 (50m laug)
Telpur: Ragnheiður Karen Olafsdóttir   538 stig, 100 bringusund  1.16.66
Drengir: Kristján Magnússon                430 stig, 800 skriðsund     9.47.51
Stúlkur : Brynhildur Traustadóttir          705 stig, 400 skriðsund     4.23.41
Piltar: Sindri Andreas Bjarnasson         541 stig, 200 skriðsund    2.01.90
Karlar: Ágúst Júliusson                         662 stig, 50m flugsund     25.01

Edit Content
Edit Content
Edit Content