Hið árlega kjör Íþróttamanns Akraness hefst á morgun þriðjudag 28.12 og stendur kosning til og með 03.01.2022.
Vegna COVID-19 þá er það annað árið í röð sem ekki öll aðildarfélög ÍA geta verið með tilnefningar í þetta kjör
Ekki var hægt að halda alla þá viðburði sem áætlaðir voru árið 2021.
Úrslit verða kunngerð þann 6. Janúar 2022 í beinu streymi frá Garðavöllum í gegnum Youtub rás ÍATV.
Kosning fer fram að venju í gegnum íbúagátt Akraneskaupstaðar og verður opnað fyrir hana á morgun
Þar eru allar upplýsingar um þá sem tilnefndir eru.
Eru í starfrófsröð þessi :
Björn Viktor Viktorsson – Kylfingur ársins
Dana Joy Scheriff – Knattspyrnukona ársins frá KFÍA
Drífa Harðardóttir – Badmintonkona ársins
Enrique Snær Llorens Sigurðsson – Sundmaður ársins
Ísak Snær Þorvaldsson – Knattspyrnumaður ársins frá KFÍA
Jakob Svavar Sigurðsson – Hestamaður ársins
Kristín Þórhallsdóttir – Kraftakona ársins
Kristrún Bára Guðjónsdóttir – Karatekona ársins
Marinó Hilmar Ásgeirsson – Knattspyrnumaður ársins frá Kára
Salka Brynjarsdóttir – Fimleikakona ársins
Stefán Gísli Örlygsson – Skotmaður ársins
Þórður Freyr Jónsson – Körfuboltamaður ársins
Þórkatla Þyrí Sturludóttir – Klifrari ársins