Sunnudaginn 15 desember verður FIMA með jólasýningu í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þemað í ár er tröllið sem stal jólunum og taka allir iðkendur félagsins þátt í sýningunni.
Iðkendur og þjálfarar hafa unnið hart að undirbúning sýningarinnar og hlakka til að sýna hvað þau hafa verið að gera.
Miðasala hefst í anddyrinu á Vesturgötunni kl 10 en sýningarnar eru kl 12 og 14.
Miðaverð er 1500 kr fyrir fullorðna en 500 kr fyrir 6-12 ára. Athugið að einungis er hægt að greiða með pening.