ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Jakob Svavar Sigurðsson er Íþróttamaður Akraness 2019

Jakob Svavar Sigurðsson er Íþróttamaður Akraness 2019

06/01/20

Picture8

Í dag var Jakob Svavar Sigurðsson kjörinn Íþróttamaður Akraness í annað sinn. Jakob Svavar hefur um langt árabil verið einn af bestu íþróttaknöpum á landinu og unnið marga íslandsmeistaratitla auk heimsmeistaratitils. Hann hefur einnig hlotið mörg verðlaun fyrir góða reiðmennsku og prúðmennsku. Jakob Svavar er í landsliðshóp LH en hann skipa 19 afreksknapar í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis og erlendis. Hann er efstur á heimslista (World Ranking) FEIF (alþjóðasamtök íslenska hestsins)  í tölti. Á árinu 2019 sigraði Jakob m.a. í einstaklingskeppni meistaradeildarinnar í hestaíþróttum með því að verða í fyrsta sæti í fimmgang, fyrsta sæti í tölti, fyrsta sæti í slaktaumatölti og í þriðja sæti í fjórgang.

Í öðru sæti í kjörinu varð Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur sem hefur hampað titlinum oftast allra eða í 7 skipti og í þriðja sæti varð Alexander Örn Kárason kraftlyftingamaður.

Edit Content
Edit Content
Edit Content