ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Jakob er heimsmeistari í tölti !

Jakob er heimsmeistari í tölti !

16/08/17

985841

Heimsmeistaramót íslenska hestsins fór fram í Hollandi í síðustu viku. Mótið er haldið á tveggja ára fresti.

Okkar maður Jakob Svavar var valinn í landsliðið til keppni í tölti og fjórgangi á hestagullinu Gloríu frá Skúfslæk.

Þau urðu 8.  í fjórgangi  og gerðu sér svo lítið fyrir og sigruðu síðan töltið með yfirburðum (8.94) og skildi áhorfendur eftir með kjálkann niður á bringu af aðdáun. Framúrskarandi fagmennska fram í fingurgóma. Jakob fékk afhent hið eftirsótta Tölthorn við mikinn fögnuð áhorfenda.

Hestamannafélagið Dreyri óskar Jakob Svavar innilega til hamingju með STÓRKOSTLEGAN  árangur 🙂

HEIMSMEISTARI 

Hér er hægt að sjá fleiri fréttir og viðtöl af mótinu í gegnum www.eidfaxa.is.  http://www.eidfaxi.is/archive/frettir/

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content