Íþróttabandalag Akraness leggur áherslu á jafnrétti kynjanna hvað varðar aðstöðu, þjálfun og fjármagn. Félagið veitir öllum iðkendum möguleika á aðstunda íþróttir óháð kynferði, búsetu, þjóðerni, trú eða litarhætti.
Iðkendur á Akranesi eiga jafnan rétt og möguleika til að stunda íþróttir með aðildarfélögum ÍA óháð, kyni, fötlun, uppruna, trúarskoðun eða efnahag.
Bæði kyn hafa jafna möguleika til að stunda allar íþróttagreinar sem aðildarfélög ÍA bjóða uppá.
Aðildarfélög ÍA gera sömu hæfniskröfur til þjálfara beggja kynja og greiða laun skv. menntun þeirra og reynslu en ekki kynferði þeirra sjálfra eða þeirra sem þeir þjálfa.
Aðildarfélög ÍA sjá til þess að aðstaða og möguleikar beggja kynja til afreka sé jöfn og hvetja bæði kyn jafnt til afreka.
Iðkendur, félagsmenn og starfsmenn aðildarfélaga ÍA hafa ekki uppi orð eða athafnir sem líta má á sem kynja- eða kynþáttamisrétti gagnvart öðrum.
Iðkendur og aðrir félagsmenn eru meðvitaðir um menningarmun og hugsanlega vanþekkingu innflytjenda á aðstæðum á Akranesi og leggja sig fram um að aðstoða alla við aðlögun að íþróttastarfi ÍA.
Leitast er við að kynjahlutföll séu sem jöfnust í stjórnum félaga og íþróttabandalags svo og öðrum trúnaðarstörfum innan aðildarfélaga ÍA.