Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Íþróttasjóði fyrir árið 2017. Umsóknarfrestur er 3. október 2016. Sjóðurinn er opinn fyrir íþrótta- og ungmennafélög og alla þá sem eru að starfa að íþróttamálum og útbreiðslu- og fræðsluverkefnum á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á heimasíðu Rannís sem hefur umsjón með sjóðnum fyrir hönd menntamálaráðuneytisins.