HVAÐ ER Í BOÐI

VALMYND

Íþróttamanneskja Akraness 2025

Íþróttamanneskja Akraness 2025

08/01/26

DSCF8047

Íþróttamanneskja Akraness 2025 var kynnt þann 6. janúar.

Einar Margeir Ágústsson frá Sundfélagi Akraness hlaut titilinn og óskum við honum innilega til hamingju. Þetta er í þriðja árið í röð sem Einar Margeir er kjörinn Íþróttamanneskja Akraness.

Í öðru sæti varð körfuknattleiksmaðurinn Styrmir Jónasson, og í þriðja sæti Guðmundur Andri Björnsson frá Fimleikafélagi ÍA.

Alls voru 16 íþróttamenn tilnefndir í ár. Þau öll áttu það svo sannarlega skilið, enda um að ræða framúrskarandi íþróttafólk sem er til fyrirmyndar og leggur mikla vinnu á sig til að ná sem bestum árangri í sinni grein.

Vegna náms og æfinga í Bandaríkjunum gat Einar Margeir ekki verið viðstaddur athöfnina. Því fylgir hér mynd frá því í fyrra af Einari ásamt Gyðu Björk, formanni ÍA, og Steina Helga Dan, en hann og fjölskylda hans gefa hinn glæsilega Helga Dan bikar, sem Íþróttamanneskja Akraness fær til viðbótar við eignarbikar, einnig gefin af fjölskyldunni. Bróðir Einars Margeirs.

Guðni Geir Jóhannesson bróðir Einars Margeirs tók við Helga Dan bikarnum fyrir hönd Einars. (f.v) Steinn Mar Helgason, Guðmundur Andri Björnsson, Guðni Geir Jóhannesson, Styrmir Jónasson og Gyða Björk Bergþórsdóttir.

Edit Content
Edit Content
Edit Content
Edit Content