Fulltrúar sambandsaðila UMFÍ samþykktu á sambandsþingi á Laugarbakka í Miðfirði þann 12. október 2019 umsóknir Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalags Akraness (ÍA) að UMFÍ.
Umsóknir íþróttabandalaganna voru samþykkt með nær öllum atkvæðum og fá þau nú stöðu sambandsaðila innan UMFÍ.
„Hreyfingin verður öflugri við þetta. Við horfum við framtíðar. Nú getum við sameinað krafta okkar og orðið öflugri samtök en áður,“ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ í fréttatilkynningu.
Málið hefur verið í vinnslu í um 20 ár en á undaförnum fjórum árum hefur komið meiri kraftur í viðræðurnar en ÍA sótti formlega um aðild fyrir um þremur árum síðan. Eftir samþykktina á sambandsþinginu þá eru reglurnar þannig:
- Þegar íþróttabandalög bætast við UMFÍ fá þau stöðu sambandsaðila á sama hátt og önnur íþróttahéruð landsins.
- Hvert og eitt bandalag þarf að sækja um inngöngu og geta þau sem ekki vilja gera það staðið utan UMFÍ.
- Félög UMFÍ með beina aðild munu áfram halda aðild sinni að UMFÍ en í gegnum íþróttabandalög á sama hátt og flest aðildarfélög UMFÍ í dag. Í þeim tilvikum þar sem íþróttabandalag hefur ekki sótt um aðild verður staða félags með beina aðild óbreytt.
- Með tillögum vinnuhóps um aðild hafa hagsmunir núverandi sambandsaðila varðandi lottó og fjölda þingfulltrúa verið tryggðir.