ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

ÍA tekur á móti ÍR í Inkasso-deild kvenna

ÍA tekur á móti ÍR í Inkasso-deild kvenna

16/05/18

#2D2D33

Meistaraflokkur kvenna tekur á móti ÍR í fyrsta heimaleik sumarsins í Inkasso-deildinni á morgun, fimmtudag. Leikurinn hefst kl. 20:00 og fer fram á Norðurálsvelli.

Skagastelpur byrjuðu tímabilið á góðum útisigri á liði Hauka og núna eru það ÍR-ingar sem koma í heimsókn en þeim var spáð um miðja deild í spám fyrir tímabilið. Ljóst er þó að hvorugt liðið mun gefa neitt eftir og því verður vafalaust um hörkuleik að ræða.

Við hvetjum Skagamenn til að fjölmenna á fyrsta heimaleik sumarsins á morgun og styðja stelpurnar til sigurs gegn ÍR.

Edit Content
Edit Content
Edit Content