Meistaraflokkur karla leikur sinn annan leik í Inkasso-deild karla á morgun, fimmtudag, þegar liðið heimsækir Þór á Akueyri. Leikurinn fer fram á Þórsvelli og hefst kl. 16.
Skagamenn hófu leik í deildinni af krafti þegar liðið vann frekar öruggan 1-0 sigur á Leiknismönnum. Vonandi verður áframhaldandi gengi þar á.
Við hvetjum Skagamenn sem hafa kost á því að fara í ferðalag norður á morgun og styðja strákana til sigurs.