Meistaraflokkur kvenna fer og mætir Fjölni í Inkasso-deildinni á morgun, sunnudag. Leikurinn hefst kl. 14 og fer fram á Extra vellinum í Grafarvogi.
Skagastelpur hafa byrjað tímabilið vel og unnið tvo fyrstu leiki liðsins. Liðið er í þriðja sæti deildarinnar og staðan er björt fyrir komandi sumar.
Við hvetjum Skagamenn til að fjölmenna í Grafarvoginn á morgun og styðja stelpurnar til sigurs gegn Fjölni.