ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Hvalfjarðarsveit styrkir starfið

Hvalfjarðarsveit styrkir starfið

30/11/24

image-2

Nú í vikunni hlaut ÍA styrk frá Hvalfjarðarsveit vegna íþróttastarfs barna- og ungmenna og var hann greiddur út til aðildafélaga ÍA í gær.
Hvalfjarðarsveit veitir aðildafélögum ÍA styrk sem voru með iðkendur með skráð lögheimili í Hvalfjarðarsveit árið 2023.

Samningur var undirritaður árið 2022 og var hann vísitölutryggður sem tryggir félögum hækkun á styrk í samræmi við verðbólgu.

Styrkurinn sem greiddur var út í ár nam samtals kr.  5.678.413,- en framlag Hvalfjarðarsveitar er kr. 46.365,- fyrir hvern iðkanda og skiptist það fjármagn á milli tíu aðildafélaga ÍA.

Alls voru 121 iðkendur með skráð lögheimili í Hvalfjarðarsveit sem stunduðu íþróttir hjá tíu aðildafélögum ÍA árið 2023 og skiptist fjármagnið á milli þeirra m.v. iðkendatölu. Gaman er að segja frá því að iðkendum ÍA með lögheimli í Hvalfjarðarsveit fjölgaði um 20% milli ára.

Við viljum nota tækifærið og þakka Hvalfjarðarsveit fyrir sitt framlag til að gera gott íþróttastarf ÍA enn betra.

Áfram ÍA og áfram Hvalfjarðarsveit.

Edit Content
Edit Content
Edit Content
Edit Content