ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Hugum að heilsunni

Hugum að heilsunni

15/10/20

ISI-verum-hraust-

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands – ÍSÍ fer nú af stað með skilaboðin #verumhraust á samfélagsmiðlum. ÍSÍ hvetur alla landsmenn til að sýna frumkvæði og sköpunargleði við að efla líkamlega og andlega heilsu sína á tímum kyrrsetu og tímabundinna takmarkana. Ótal aðferðir eru fyrir hendi, hreyfingu má stunda á hinum ýmsu stöðum og í margvíslegri mynd, utan dyra og innan, að viðhöfðum ítrustu sóttvörnum.

Benda má á göngutúra, útihlaup, styrktaræfingar, stafagöngur, fjallaferðir, línuskauta, hjólreiðar, sjósund, heimajóga eða þolfimi, en listinn er sannarlega lengri.

#verumhraust – ÍSÍ hugum að heilsunni

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content