ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Höfuðhögg í íþróttum – súpufundur

Höfuðhögg í íþróttum – súpufundur

30/01/19

Heilahristingur (7)

Miðvikudaginn 6. febrúar frá 12:00-13:00 munu ÍSÍ og KSÍ standa fyrir súpufundi á 3.hæð í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.

 

Viðfangsefnið er höfuðhögg/heilahristingur í íþróttum. Þar mun Lára Ósk Eggertsdóttir Classens sem er læknir á bráðamóttöku halda fyrirlestur og Ragna Margrét Brynjarsdóttir, mastersnemi í sálfræði og María Björnsdóttir sjúkraþjálfari segja reynslusögur, en þær eru báðar körfuboltakonur sem fengu heilahristing í fyrra.

 

Frítt er á viðburðinn og boðið verður upp á súpu og brauð.

Athugið að fundinum verður einnig streymt beint.

Viðburðurinn veitir 2 endurmenntunarstig til þeirra þjálfara sem eru með UEFA/KSÍ A eða UEFA/KSÍ B þjálfararéttindi.

 

Skráning er hér;https://goo.gl/forms/P3Q5hR1pFHkv1fgw2

Edit Content
Edit Content
Edit Content