ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Hjólað í vinnuna 2. – 22 maí

Hjólað í vinnuna 2. – 22 maí

26/04/18

hjolad

Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2018 fer fram 2. – 22. maí. Opið er fyrir skráningu og við hvetjum alla til að skrá sig strax til leiks

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er eins og ávalt að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta. 

Keppt er í átta flokkum um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustöðum og í liðakeppni um flesta kílómetra.

Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.

Að skrá sig til leiks:

1. Farið er inná vef Hjólað í vinnunawww.hjoladivinnuna.is
2. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
3. Stofnaðu þinn eigin aðgang með því að skrá þig inn með Facebook eða búðu þér til notendanafn og lykilorð.
4. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn).
5. Skráningu lokið

Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inná vef Hjólað í vinnuna 

Edit Content
Edit Content
Edit Content