ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Hin hliðin Aníta Sól Ágústsdóttir

Hin hliðin Aníta Sól Ágústsdóttir

24/05/18

#2D2D33

Leikskrá ÍA kom út á dögunum og hinn frábæri hópur meistaraflokks kvenna. Það láðist að birta myndir af fjórum í mfl. kvk en þær eru Erla Karítas Jóhannsdóttir, Aníta Sól Ágústsdóttir , Bryndís Rún Þórólfsdóttir og Veronica Líf Þórðardóttir

 

Hér kynnum við til leiks Anítu Sól Ágústsdóttur. 

 

Aníta Sól Ágústsdóttir

 

Fullt nafn: Aníta Sól Ágústsdóttir

Gælunafn sem þú þolir ekki: er kölluð alls konar nöfnum í Bandaríkjunum en Ník Níks er ekki uppáhalds

Aldur: 21 árs á þessu ári

Hjúskaparstaða:  Í sambandi

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 8.ágúst 2013

Uppáhalds drykkur: Vatn

Uppáhalds matsölustaður: Chipotle er í uppáhaldi núna

Hvernig bíl áttu: Keyri um á mömmu og pabba bíl

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Allt of margir til að velja, Scandal er ofarlega

Uppáhalds tónlistarmaður: Sam Smith

Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Fæ mér sjaldan bragðaref og það breytist alltaf en vel oft jarðaber, mars og oreo

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: „Yaaas“ – Elísa sys

Hvaða þrjá einstaklinga tækir þú með þér til Vegas: Trio-ið mitt, Veró, Aldísi og Bryndísi

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Fanndís Friðriksdóttir

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Kemur engin strax í hugann

Sætasti sigurinn: Bikarúrslit á móti Breiðablik árið 2014

Mestu vonbrigðin:Pepsí ferðirnar upp og niður

Uppáhalds lið í enska:Man United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Sandra Stephany Mayor

Uppáhalds staður á Íslandi:Akranesið

Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi:Leikmaður nr.1 hjá Kára

Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Elín Metta

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ekki beint í leik, en það er alltaf jafn skrautlegt að heyra þá í Bandaríkjunum segja eftirnafnið mitt í leik

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike mercurial

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Stærðfræði

Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju:myndi taka trio-ið mitt aftur, svo yrði ég örugglega að taka Elísu sys með

Sturluð staðreynd um sjálfan þig:er með auka vöðva fyrir aftan hné.

Edit Content
Edit Content
Edit Content