ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Helga Sjöfn kjörin formaður ÍA á 70 ára afmælisþingi ÍA

Helga Sjöfn kjörin formaður ÍA á 70 ára afmælisþingi ÍA

08/05/16

IMG_6883

72. ársþing ÍA fór fram þann 3 maí sl. Þingið var vel sótt enda fagnar ÍA 70 ára afmæli á þessu ári. ÍA kórinn söng 2 lög í tilefni af afmælinu og einnig komu Símon og Halla fram og tóku 2 lög. Sigurður Arnar og Helga Sjöfn gerðu í sameiningu grein fyrir ársskýrslu ÍA og fóru þar yfir það helsta í starfi ÍA á liðnu ári. Ingi Þór Ágústsson fulltrúi ÍSÍ ávarpaði þingið og færði ÍA afmælisgjöf frá ÍSÍ. Hann notaði tækifærið og sæmdi Halldór Fr. Jónsson gullmerki ÍSÍ fyrir hans áratuga störf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Akranesi. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri ávarpaði einnig þingið og færði ÍA að gjöf frá Akraneskaupstað kr. 500.000 sem rennur í Minningarsjóð Guðmundar Sveinbjörnssonar sem er til styrktar efnilegu íþróttafólki og þjálfurum hjá ÍA. Heildarvelta ÍA er rúmar 385 m. kr. og er reksturinn í jafnvægi. Framkvæmdastjórn ÍA ákvað í tilefni af 70 ára afmælinu að veita öllum sínum aðildarfélögum afmælisstyrk að upphæð kr. 70.þúsund. Einnig voru veittir afreksstyrkir að upphæð kr. 150 þúsund til Ágústar Júlíussonar, Valdísar Þóru Jónsdóttur og Egils G. Guðlaugssonar, en þau urðu í þrem efstu sætunum í kjörinu á íþróttamanni Akraness fyrir árið 2015. Klifurfélag ÍA var samþykkt sem 18. aðildarfélag ÍA og einnig var samþykkt að Sjósportfélagið Sigurfari færi í umsóknarferli um aðild að ÍA.  Íþróttabandalagið sæmdi eftirtalda einstaklinga bandalagsmerki ÍA sem viðurkenningu fyrir langt og farsælt starf tengt íþróttamálum á Akranesi: Laufey Sigurðardóttir, Erna Sigurðardóttir, Anna Guðbjörg Lárusdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Jónína Magnúsdóttir, Katrín Leifsdóttir, Heiðbjört Kristjánsdóttir, Grétar G. Guðnason, Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, Ólafur Óskarsson, Jóhannes Helgason, Jón Þór Þórðarson, Petrea Emilía Pétursdóttir og Gunnlaugur Sölvason. Á ársþinginu var Helga Sjöfn Jóhannesdóttir kjörin formaður ÍA og er hún fyrsta konan í 70 ára sögu ÍA til þess að gegna því embætti. Aðrir í framkvæmdastjórn ÍA voru kjörin: Sigurður Arnar Sigurðsson, Karitas Jónsdóttir, Svava Huld Þórðardóttir og Marella Steinsdóttir, til vara voru kjörnir Þráinn Haraldsson og Pálmi Haraldsson.

IMG_6956
Halldór Fr. Jónsson sæmdur gullmerki ÍSÍ

IMG_6906

Edit Content
Edit Content
Edit Content