Samþykkt var að taka upp hegðunarviðmið ÍSÍ á 75. ársþingi ÍA 2019.
Hegðunarviðmið fyrir þjálfara
1. Komdu fram af virðingu
Komdu eins fram við alla iðkendur óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
Berðu virðingu fyrir einstaklingnum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.
Berðu virðingu fyrir mótherjum, foreldrum/forsjáraðilum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki og stuðlaðu að því að iðkendur geri slíkt hið sama.
2. Vertu heiðarleg(ur)
Farðu eftir reglum íþróttagreinarinnar, haltu á lofti heiðarleika (fair play) og hvettu iðkendur til að gera það líka.
Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
Gættu trúnaðar og sýndu aðgætni við meðferð og vörslu persónuupplýsinga. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera af brýnni nauðsyn og í samræmi við lagaboð.
Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
3. Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar
Allir iðkendur eiga skilið að fá athygli og jöfn tækifæri.
Leggðu þig fram þannig að iðkendur fái sem mest út úr æfingunni.
Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur.
Ýttu undir heilbrigðan lífsstíl með góðu fordæmi.
4. Berðu virðingu fyrir þjálfarastarfinu
Gerðu kröfur til þín varðandi málfar, hegðun, stundvísi, undirbúning og kennslu/þjálfun.
Sýndu íþróttinni og félaginu virðingu og virtu reglur.
Leggðu metnað þinn í starfið og leitaðu leiða til að auka þekkingu þína.
Skipuleggðu starfið með tilliti til getu og þroska iðkenda.
Vertu óhræddur við að leita eftir samstarfi við aðra þjálfara eða sérfræðinga.
Taktu leiðtogahlutverk þitt alvarlega og nýttu stöðu þína á uppbyggilegan hátt.
Haltu iðkendum og aðstandendum upplýstum um þjálfunina.
5. Það sem er iðkandanum fyrir bestu
Gættu að öryggi í umhverfi og að aðbúnaður hæfi aldri og þroska iðkenda.
Settu heilsu og heilbrigði iðkenda á oddinn og varastu að setja þá í aðstöðu sem ógnað getur heilbrigði þeirra.
Sýndu athygli og umhyggju þeim sem orðið hafa fyrir meiðslum og þeim sem leita til þín vegna andlegrar vanlíðunar.
Forðastu að koma þér í þá stöðu að vera einn með iðkanda.
6. Ofbeldi er ekki liðið í íþróttahreyfingunni!
Vertu vakandi og beittu þér gegn öllu ofbeldi: líkamlegu, kynferðislegu og andlegu.
Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti.
Forðastu líkamlega snertingu við iðkendur, nema þar sem hún er nauðsynlegur hluti þjálfunarinnar.
Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.
Hegðunarviðmið fyrir iðkendur
1. Komdu fram af virðingu
Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
Berðu virðingu fyrir einstaklingum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.
Sýndu íþróttinni virðingu og virtu reglur hennar, venjur og siði.
Berðu virðingu fyrir andstæðingum, dómurum, foreldrum/forsjáraðilum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki.
Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft sem er laust við líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi.
2. Vertu heiðarleg(ur)
Farðu eftir reglum íþróttarinnar og komdu fram af fullkomnum heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum þér og öðrum.
Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
3. Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar
Berðu ábyrgð á eigin hegðun.
Gerðu þitt besta þannig að þú fáir sem mest út úr æfingunni.
Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur og hafðu það hugfast að þú ert fyrirmynd yngri iðkenda.
Tileinkaðu þér heilbrigðan lífsstíl.
Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti.
Hegðunarviðmið fyrir stjórnarmenn og starfsfólk
1. Komdu fram af virðingu
Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
Berðu virðingu fyrir skoðunum annarra.
2. Vertu heiðarleg(ur)
Farðu eftir reglum íþróttahreyfingarinnar, haltu á lofti heiðarleika (fair play) og hvettu félagsmenn til að gera það líka.
Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
Gættu fyllsta trúnaðar þar sem við á.
Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
Forðastu eða tilkynntu fjárhagslega og persónulega hagsmunaárekstra.
3. Vertu félagsmönnum góð fyrirmynd
Vertu ávallt til fyrirmyndar varðandi hegðun og framkomu, bæði innan félags og utan.
Virtu lýðræðisreglur og gagnsæi við ákvarðanatöku og stjórnaðu samkvæmt reglum um ábyrga fjármálastjórn.
Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur.
Leggðu metnað í starfið og berðu ábyrgð á eigin hegðun.
Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.
4. Berðu virðingu fyrir starfsemi félagsins
Þekktu lög og reglur félagsins.
Stattu vörð um anda og gildi félagsins.
Hafðu lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
Sýndu íþróttum virðingu og virtu reglur þeirra, venjur og siði.
Sýndu öllum iðkendum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og starfsfólki virðingu og stuðlaðu að því að iðkendur og félagsmenn geri slíkt hið sama.
Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.
Hegðunarviðmið fyrir foreldra/forsjáraðila
Mundu að barnið þitt er í íþróttum sín vegna, en ekki þín vegna.
Hvettu barnið til þátttöku í íþróttum, en ekki þvinga það.
Hvettu öll börn, ekki bara þitt.
Sýndu jákvæðni, líka þegar á móti blæs.
Berðu virðingu fyrir öllum iðkendum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki.
Berðu virðingu fyrir réttindum barna, hvert barn er einstakt.
Mundu að þjálfarinn þjálfar en foreldrar hvetja.
Upplýstu um stríðni, einelti eða áreitni.
Sýndu starfi félagsins virðingu og vertu virkur þátttakandi.
Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.
Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
Þér ber að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.