ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Handboltaæfingar á Akranesi

Handboltaæfingar á Akranesi

02/02/23

pascal-swier-otuM-nw-_NY-unsplash

HSÍ – Hanknattleikssamband Íslands í samstarfi við ÍA og íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar

verða með kynningu á handbolta næstu sunnudaga og bjóða upp á æfingar fyrir börn á grunnskólaaldri.

Æfingar fara fram í Íþróttahúsinu á Vesturgötu og verður um tvo aldurshópa að ræða til að byrja með

1 til 4. bekkur

kl. 14:00 til 15:00

5. til 7. bekkur

kl. 15:00 til 16:00

Þjálfarar verða þau Ingvar Örn Ákason og Kolbrún Helga Hansen, en bæði hafa þau reynslu af þjálfun í handknattleik.

Æfingar hefjast næstkomandi sunnudag (5. febrúar), allir velkomnir á æfingarnar sem verða iðkendum að kostnaðarlausu.

Við hvetjum alla til að koma og prófa , æfingarnar halda áfram næstu sunnudaga og við lofum lífi og fjöri fyrir alla sem mæta.

Edit Content
Edit Content
Edit Content