ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Göngum í Skólann 2022

Göngum í Skólann 2022

16/08/22

32769_91_preview (002)

Nú styttist í að verkefnið Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) hefjist en það verður sett í
sextánda sinn 7. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann
deginum miðvikudaginn 5. október.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér
virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem
göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn
við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að
komast á milli staða

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann
með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru
þátttökuskólarnir 26 en alls 78 skólar skráðu sig til leiks árið 2021.

Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar um
verkefnið en þar má meðal annars finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á
verkefninu auk ýmiss annars efnis frá þátttökuskólunum.

Edit Content
Edit Content
Edit Content