ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Fréttatilkynning frá aðalstjórn KFÍA

Fréttatilkynning frá aðalstjórn KFÍA

06/04/18

#2D2D33

Hulda Birna Baldursdóttir hættir sem framkvæmdastjóri

Knattspyrnufélags ÍA 1. ágúst

Hulda Birna Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins ÍA, hefur sagt starfi sínu lausu og mun ljúka störfum 1. ágúst næstkomandi.  Hún hættir af persónulegum ástæðum.

Það hefur verið spennandi áskorun fyrir mig að takast á við að vera framkvæmdastjóri KFÍA, félagið sem ég er alin upp í. Það er frábær kraftur í öllu starfinu, frábærir stuðningsaðilar, þjálfarar, starfsmenn og leikmenn og miklu skiptir að félagsandinn er góður. Ég vil þakka sérstakleg framkvæmdastjórn KFÍA, stjórn og uppeldissviði fyrir frábært samstarf. Framundan er keppni í Inkasso deild karla og kvenna og það þarf að huga að mörgu í undirbúningi fyrir mótið. Norðurálsmótið, þar sem um 1500 keppendur í 7. flokki drengja leika knattspyrnu, mun einnig fara fram á Skaganum í byrjun júní nk., það er afar mikilvægt verkefni fyrir KFÍA. Þessum verkefnum mun ég sinna af krafti ásamt öðru sem fylgir framkvæmdastjórastarfinu. Auk þess sem ég mun taka að mér tímabundið verkefni fyrir KSÍ vegna HM.  Þar mun ég verða milliliður 365 miðla, KSÍ og Ölgerðarinnar með markaðssetningu á Pepsídeildinni, Inkasso deildinni og Mjólkurbikarnum. Það stefnir því í erilsamt sumar sem verður spennandi að takst á við”.

Knattspyrnufélag ÍA vill nota tækifærið og þakka Huldu Birnu Baldursdóttur fyrir góð störf fyrir knattspyrnufélagið frá árinu 2016 sem framkvæmdastjóri og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.

Framundan eru spennandi tímar í knattspyrnunni á Akranesi þar sem byggt verður á gildum félagsins en þau eru metnaður, vinnusemi, þrautseigja, virðing og agi.

 

Akranesi 6. apríl 2018

 

Aðalstjórn Knattspyrnufélags ÍA

Edit Content
Edit Content
Edit Content