ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Dagur sjálfboðaliðans er í dag

Dagur sjálfboðaliðans er í dag

05/12/19

sjálfboðaliðar

Ár hvert er 5. desember helgaður sjálfboðaliðum um allan heim.

Íþróttalíf á Akranesi hefur í gegnum tíðina verið borið uppi af sjálfboðaliðum sem starfað hafa af ástríðu í þágu íþrótta í bæjarfélaginu okkar. Sjálfboðaliðar í hreyfingunni sinna verkefnum, stórum jafnt sem smáum, og sjá til þess að starfsemin blómstri. Það gleymist oft að þakka sjálfboðaliðum fyrir þeirra mikilvæga framlag og því er tilvalið að nýta þennan góða dag til að þakka þeim fyrir þeirra mikilvægu störf. Vonandi mun íþróttahreyfingin á Akranesi áfram búa svo vel að geta leitað aðstoðar hjá sjálfboðaliðum svo íþróttalíf í bænum okkar megi halda áfram að dafna og eflast.

Íþróttabandalag Akraness sendir öllum sjálfboðaliðum í íþróttahreyfingunni bestu kveðjur í tilefni dagsins og þakkir fyrir frábær störf í þágu samfélagsins.

Edit Content
Edit Content
Edit Content