ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Brynhildur fagnaði Íslandsmeistaratitli og fer á NM – góð helgi hjá sundfólki ÍA

Brynhildur fagnaði Íslandsmeistaratitli og fer á NM – góð helgi hjá sundfólki ÍA

14/11/18

forside

 

Íslandsmeistaramót í 25m laug fór fram um síðustu helgi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Átti Sundfélag Akranes þar ellefu keppendur. Alls tók 171 sundmaður þátt frá 12 félögum. Ungmennin úr ÍA áttu mjög góða helgi þar sem persónulegar bætingar voru alls 44 og syntu þau 15 sinnum til úrslita á mótinu.

Brynhildur Traustadóttir varð Íslandsmeistari í 1500m skriðsundi á tímanum 17.21.74 í hörkukeppni alla 1500 metrana. Brynhildur bætti sig um 36 sekúntur og setti þar með nýtt Akranesmet í flokki 15-17 ára. Hún átti mjög góða helgi líkt og aðrir félagar hennar úr liðinu. Vann til bronsverðlauna í 400m skriðsundi þar sem hún bætti sig um 5 sekúntur og fór á tímanum 4.23.41, sem var aðeins hálfri sekúndu frá gullinu og 0,3 sek. frá silfrinu í æsispennandi sundi. 200m skriðsund var einnig mjög spennandi en þar hafnaði Brynhildur í öðru sæti og bætti sig um 7 sekúntur, synti á tímanum 2.05.57. Hún er nú komin með tvö lágmörk inn á Norðurlandameistaramótið, í 200 og 400m skriðsundi.

Atli Vikar Ingimundarson átti frábæran sprett í 50m flugsundi á tímanum 26,6, mjög góð bæting og ekki síst vegna þess að hann hefur lítið getað æft sökum meiðsla í ökkla en hann varð að sleppa sundi í 100m skriðsundi vegna þess. Atli náði 6. sæti í 50m skriðsundi á tímanum 24,90 sem var betri tími en hann átti fyrir mótið. Hann hafnaði einnig í 6. sæti í 100m flugsundi á tímanum 1.00.53.

Sindri Andreas Bjarnason var að bæta sinn tíma verulega í 100m skriðsundi, bætti sig um 2 sekúndur og hafnaði í 7. sæti á tímanum 55,16. Í 50m bringusundi bætti hann sig einnig og náði 5. sæti á tímanum 32.20. Sindri hafnaði svo í 8. sæti í 200m skriðsundi á nýjum tíma 2.01,90.

Erlend Magnússon átti fína helgi og sýndi góðar framfarir. Í 50m baksundi bætti hann tímann sinn og synti á 28,98 sem færði honum 6. sætið. Hann bætti sig einnig um 5 sekúntur í 100m bak og hafnaði í 5. sæti á tímanum 1.03,88. Erlend synti einnig 50m skriðsund og 50m flugsund og var að bæta sig í báðum greinum.

Enrique Snær Llorens synti vel um helgina og bætti sig í 100, 200 og 400 skriðsundi. Kristján Magnússon stóð sig vel á sínu fyrsta IM, bætti sig um 13 sekúntur í 1500m skiðsundi og var við sinn besta tíma í 800m skriðsundi.

Ragnheiður Karen Ólafsdóttir var í góðu formi í bringusundinu, hafnaði í 5. sæti í 50m á tímanum 35,84 og 8. sæti í 100m á tímanum 1.17,82 en í því sundi þurfti hún að endurtaka sundið þar sem þær voru tvær sem voru á nákvæmlega sama tíma en aðeins 8 keppendur taka þátt í úrslitum. Náði Ragnheiður því sæti með frábærri bætingu um 3 sekúntur og aðeins 0,5 sek frá lágmarki á Norðurlandameistaramót. Hún synti á tímanum 1.16,66

Ásgerður Jing Laufeyjardóttir hafnaði í 8. sæti í 200m fjórsundi, mjög flott bæting á tímanum 2.34,40. Hún bætti sig einnig í 100m skriðsundi og fór á tímanum 1.02,17 aðeins 0,03 sek frá úrslitum. Þá bætti hún sig einnig í 50m baksundi og 200m bringusundi.

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir varð 8. sæti í 50m bringusundi með bætingu upp á 1,5 sek á tímanum 36,33. Hún bætti sig einnig vel í 100m bringusundi á tímanum 1.19.78.

Ngozi Jóhanna Eze synti 50m og 100m skriðsund rétt á eftir sínum besta tíma á sínu fyrsta IM og átti góða spretti í boðsundum þar sem hún var að bæta sína tíma.

Ingibjörg Svava Magnúsardóttir  synti 200m skriðsund rétt á eftir sínum besta tíma sem hún náði fyrir aðeins tveimur vikum, hún átti einnig góða spretti í boðsundum.

Úrslit helgarinnar hjá sundfélagi Akranes urðu þessi :

1. sæti
Brynhildur Traustadóttir  1500m skriðsund
2.sæti
Brynhildur Traustadóttir  200m skriðsund
3.sæti

Brynhildur Traustadóttir  400m skriðsund
4. sæti
Atli Vikar Ingumundarsson  50m flugsund.
4x100m skriðsund karlar (Erlend , Sindri Andras, Enrique Snær, Atli Vikar)
5. sæti
Sindri Andreas Bjarnasson 50m bringusund
Erlend Magnússon   100m baksund
Ragnheiður Karen Olafsdóttir   50m bringusund
4x200m skriðsund (Atli Vikar, Sindri Andreas, Enrique Snær, Kristján)
6. sæti
Atli Vikar Ingumundarsson 50m skriðsund & 100m flugsund
Erlend Magnússon  50m baksund
4×100 skriðsund konur (Ásgerður Jing, Guðbjörg Bjartey, Ngozi Jóhanna, Brynhildur)
4×100 skriðsund blönduð sveit (Sindri Andreas, Enrique Snær, Ragnheiður, Ingibjörg Svava
4×200 skriðsund konur (Brynhildur, Ásgerður Jing,  Guðbjörg Bjartey, Ingibjörg Svava)
7. sæti
Brynhildur Traustadóttir 100m skriðsund
Sindri Andreas Bjarnason   100m skriðsund

4×100 fjórsund blönduð sveit  (Erlend, Ragnheiður Karen, Sindri Andreas, Ngozi Jóhanna)

8. sæti

Sindri Andreas Bjarnason   100m bringusund og 200 skriðsund
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir   50m bringusund
Ásgerður Jing  Laufeyjardóttir   200m fjórsund
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir  100m bringusund
4×100 fjórsund konur  (Ásgerður Jing, Ragnheiður Karen, Brynhildur, Ngozi Jóhanna)

Edit Content
Edit Content
Edit Content