Það er óhætt að segja að komandi vika verði skemmtileg á Skaganum þegar Hreyfivika ÍSÍ í samstarfi við ÍA og Heilsueflandi samfélag Akranes fer fram.
Hreyfivika/Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin í september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Markmiðið með Hreyfivikunar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.
Hlökkum til að sjá sem flest í þessari fjölbreyttu og skemmtilegu dagskrá í tilefni af Hreyfiviku ÍSÍ #BeActive
Nánari upplýsingar munu birtast á næstu dögum á Facebooksíðu ÍA og á skagalif.is.
Hvetjum alla til að melda sig á þennan viðburð svo ekkert fari framhjá neinum: https://www.facebook.com/events/3691374514447800