ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Áskorun íþróttahéraða

Áskorun íþróttahéraða

11/12/20

#2D2D33

Áskorun íþróttahéraða!

 

Íþróttahreyfingin fagnar þeim tilslökunum sem gerðar eru í nýrri reglugerð um íþróttastarf en lýsir þungum áhyggjum af unglingunum á framhaldsskólaaldri.  Þessi hópur virðist hafa gleymst þegar kemur að útfærslu á takmörkunum hverju sinni.

 

Raddir unga fólksins okkar eru því miður of fáar og þegar við getum ekki hvatt þau til íþróttaiðkunar í jafn langan tíma og raun ber vitni þá höfum við miklar áhyggjur af brottfalli þeirra sem myndi auka líkur á frávikshegðun með tilheyrandi vandamálum.

 

Íþróttahéruðin hvetja stjórnvöld til að endurskoða afstöðu sína til þessa viðkvæma hóps í þeim afléttingum sem nú þegar eru samþykktar og hleypa fyrrnefndum aldurshópi inn í íþrótta- og æskulýðsstarf á ný, með og án snertinga og með þeim fjöldatakmörkunum sem gilda fyrir íþróttastarf.

 

Íþróttakveðja,

 

Héraðassambandið Hrafnaflóki

Héraðssamband Bolungarvíkur

Héraðssambandið Skarphéðinn

Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu Héraðssamband Strandamanna Héraðssamband Vestfirðinga Héraðssamband Þingeyinga Íþróttabandalag Akraness Íþróttabandalag Akureyrar Íþróttabandalag Hafnarfjarðar Íþróttabandalag Reykjavíkur Íþróttabandalag Reykjanesbæjar Íþróttabandalag Vestmannaeyja Íþróttabandalag Suðurnesja Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga

Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands

Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar Ungmennasamband Borgarfjarðar Ungmennasamband Eyjafjarðar Ungmennasamband Kjalarnesþings Ungmennasamband Austur-Húnvetninga Ungmennasambandið Úlfljótur Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu

 

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content