ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Ársmiðasalan er komin í gang!

Ársmiðasalan er komin í gang!

26/04/17

#2D2D33
Ársmiðasalan er að hefjast, nokkru síðar en við ætluðum. Við hvetjum samt sem áður alla Skagamenn til að fjárfesta í ársmiða og styðja þannig við stelpurnar, strákana og félagið okkar. Hægt er að kaupa ársmiða á skrifstofu félagsins, en þeir verða afhentir í miðasölunni á fyrsta heimaleik í Pepsideildinni á sunnudaginn. Miðasalan opnar kl. 16:00 og það borgar sig að mæta tímanlega.
Miðaverð á leikina í 1.deild kvenna í sumar er kr. 1.500 fyrir fullorðna og frítt fyrir börn yngri en 16 ára. Miðaverð á leikina í Pepsideild karla í sumar er kr. 2.000 fyrir fullorðna en frítt fyrir yngri en 16 ára.
Hér að neðan má sjá þau tilboð sem eru í gangi en að vanda munum við bjóða uppá Gull-, Silfur- og Bronsmiða á leikina hjá strákunum og ársmiða á leikina hjá stelpunum og Skagahjartað, sem veitir aðgang að öllum deildarleikjum meistaraflokks kvenna og karla.
Skagahjartað:
• Ársmiði gildir á alla heimaleiki í Pepsideild karla og 1. deild kvenna
• Stuðningsmannaskírteini með nafni og mynd
• Kaffi í hálfleik í vallarsjoppunum gegn framvísun skírteinis
• Fréttabréf í tölvupósti fyrir alla heimaleiki
• 10% afsláttur í Errea-búðinni í Kópavogi (gildir ekki með öðrum tilboðum)
• Réttur til að kaupa miða á lokahóf Knattspyrnufélags ÍA ef húsrúm leyfir (1 miði á mann)
• Verð: 25.000 kr.
ÍA-hettupeysa fylgir með á meðan birgðir endast
Kvennagull – Ársmiði í 1. deild kvenna:
• Ársmiði gildir á alla heimaleiki í 1. deild kvenna.
• Verð 8.000.-
Ársmiðar í Pepsideild karla:
Brons:
• Ársmiði gildir á alla heimaleiki í Pepsideild karla.
• Verð: 16.000 kr.
• Brons ársmiði + Kvennagull 20.000 kr.
Silfur:
• Ársmiði gildir á alla heimaleiki í Pepsideild karla.
• Kaffi og meðlæti í hálfleik.
• Verð: 25.000 kr.
„ÍA-húfa fylgir með keyptum silfurmiðanum á meðan birgðir endast.
Silfur ársmiði + Kvennagull 30.000 kr.
Gull:
• Ársmiði gildir á alla heimaleiki í Pepsideild karla.
• Hamborgari og gos í hátíðasalnum fyrir leik.
• Kaffi og meðlæti í hálfleik.
• Takmarkað magn miða (hámark 50 miðar á ári)
• Verð: 50.000 kr.
„ÍA-húfa og miði fyrir einn á lokahóf KFÍA fylgir með seldum Gullmiðum á meðan birgðir endast. “
Hægt er að skipta greiðslunni fyrir þessa leið í tvennt ef greitt er með kreditkorti.
Ef keyptir eru tveir gullmiðar á sama heimili 25% afsláttur af seinni miðanum
Gull ársmiði + Kvennagull 55.000 kr.
Við hvetjum alla kaupendur ársmiða til að skrá sig á póstlista hér
Miðasala er á skrifstofu KFÍA, einnig er hægt að panta miða á skrifstofa@kfia.is eða í síma 433-1109 og svo verða þeir að sjálfsögðu til sölu í miðasölunni fyrir leikinn á sunnudaginn.
Opnunartími skrifstofu mán-föstudaga 9-15.
Allir á völlinn – styðjum stelpurnar og strákana.
Áfram Skagamenn!!!
Edit Content
Edit Content
Edit Content