Aníta Ólafsdóttir hefur haft félagaskipti frá Víking Ólafsvík til ÍA. Aníta er 15 ára leikmaður sem á einn leik að baki með Víkingum í 1. deild kvenna. Hún á jafnframt þrjá leiki að baki með U-16 ára landsliði kvenna.
Við bjóðum Anítu innilega velkomna til KFÍA.
Hér má sjá Anítu Ólafsdóttur og Helenu Ólafsdóttur, þjálfara mfl kvenna, þegar félagaskiptin voru frágengin.