ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Nýtt námskeið fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir

Nýtt námskeið fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir

12/02/24

Black Closed Sign Landscape Poster (5)

Fimleikar og fótbolti fyrir alla – Allir með! ⚽️🤸

Það gleður okkur að segja frá því að Fimleikafélag ÍA og Knattspyrnufélag ÍA hafa tekið sig saman og bjóða nú sameiginlega upp á nýtt 8 vikna námskeið fyrir börn á grunnskólaaldri með mismunandi stuðningsþarfir.

Markmiðið er að auka tækifæri barna með mismunandi sérþarfir til þess að iðka fimleika og fótbolta og að þau eigi aukna möguleika á að mæta á æfingar í sínu nær umhverfi með þeirri aðstoð og aðlögun sem þarf til þess að allir geti tekið virkan þátt.

Við tökum þessari nýjung fagnandi og vonumst eftir frábærum móttökum á þetta flotta námskeið💛

Skráning er hafin á Sportabler

Edit Content
Edit Content
Edit Content
Edit Content