Í kjölfar samkomubanns sem gildir tekur á miðnætti 15. mars næstkomandi (aðfaranótt mánudags) og á að vara í mánuð er ljóst að endurskoða þarf og takmarka starfsemi á vegum aðildarfélaga ÍA.
Í samstarfi við Akraneskaupstað er unnið að sameiginlegum leiðbeiningum um íþrótta- og skólastarf barna á Akranesi. Allir aðilar eru að feta alveg nýjar slóðir, einnig yfirvöld í landinu og er því nauðsynlegt að hafa skilning á því að ekki hefur gefist tími til að sjá allt fyrir.
UMFÍ hefur birt frétt um áhrif samkomubannsins á íþrótta- og æskulýðsstarf þar sem farið er yfir stöðu málsins. https://www.umfi.is/utgafa/frettasafn/ahrif-samkomubanns-a-ithrotta-og-aeskulydsstarf/
Atburðarrásin er hröð þessa dagana og gefa verður svigrúm til að láta reyna á útfærslur og túlkun nýrra reglna. ÍA og Akraneskaupstaður munu gera sitt besta til að miðla upplýsingum til iðkenda, foreldra og íþróttafélaga á Akranesi þegar nýjar upplýsingar koma fram. Ef frekari upplýsinga er þörf t.d. varðandi fyrirkomulag æfinga er bent á að hafa samband við viðkomandi íþróttafélag.
Á heimasíðu UMFÍ umfi.is er „Spurt og svarað um áhrif samkomubanns“ og þar munu einnig birtast frekari svör á næstu dögum.
Nánari upplýsingar má finna á: