Góð mæting var á fund á vegum ÍA um forvarnarmál, en fundurinn er liður í fræðsluáætlun Íþróttabandalagsins. Til fundarins voru boðaðir forráðamenn og þjálfarar allra aðildarfélaga ÍA.
Ingibjörg Gunnarsdóttir yfirfélagsráðgjafi Velferðar- og mannréttindasviðs Akraneskaupstaðar fór yfir tilkynningarskyldu og barnavernd og hvernig tilkynna skal eða nálgast mál sem teljast tilkynningarskyld.
Heiðrún Janusardóttir verkefnastjóri æskulýðs- og forvarnarmála Akraneskaupstaðar fór svo yfir helstu niðurstöður könnunar frá Rannsóknum og greiningu um vímuefnaneyslu unglinga á Akranesi sem lögð var fyrir í febrúar 2019.
Hlekkir á ítarefni:
Niðurstöður um vímuefnaneyslu unglinga á Akranesi
Hvað virkar í tóbaks-, áfengisog vímuforvörnum í skólum – Staðreyndablað