Meistaraflokkur karla heimsækir ÍR í 17. umferð Inkasso-deildarinnar á morgun, laugardag. Leikurinn fer fram á Hertzvellinum í Mjódd og hefst kl. 14:00.
Skagamenn eru í mikilli toppbaráttu um að komast í Pepsi-deildina á nýjan leik en ÍR er í harðri fallbaráttu í deildinni. Því eru þrjú stig mikilvæg svo ÍA geti haldið áfram baráttu sinni um að komast í Pepsi-deildina.
Við hvetjum Skagamenn til að mæta í Mjóddina á morgun og styðja strákana til sigurs gegn ÍR.