Norðurálsmót Dreyra (opið íþróttamót) verður haldið 18.-19. ágúst 2018 á Æðarodda, Akranesi og er jafnframt bikarmót Vesturlands. En í því felst að Vestlendingar eru sérstaklega velkomnir en nú hefur verið ákveðið að halda þessi mót sameiginlega og munu 3 efstu keppendur í hverri grein, úr hverju Vesturlandsfélagi safna stigum sem telur til stiga í keppinni um Vesturlandsbikarinn
Keppnisgreinar:
Fimmgangur F2:
- flokkur, 2. flokkur minna vanir, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, opinn flokkur
Fjórgangur V2:
- flokkur, 2.flokkur minna vanir, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, opinn flokkur
Tölt T3:
1.flokkur, 2. flokkur minna vanir, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, opinn flokkur
Tölt T2:
- flokkur, 2. flokkur, ungmennaflokkur,unglingaflokkur, opinn flokkur
Gæðingaskeið PP1:
- flokkur, 2. flokkur minna vanir , ungmennaflokkur, unglingaflokkur, opinn flokkur
100m skeið P2
Áskilinn er réttur til að sameina flokkar og fella niður keppnisgreinar ef skráning er lítil í einstökum greinum.
Opið verður fyrir skráningar frá og með 3. ágúst og til miðnættis að kvöldi 13. ágúst. Skráningar fara fram í skráningakerfi SportFengs (sportfengur.com).
Ath – skráning er ekki gild ef millifærsla hefur ekki verið framkvæmd þegar skráningarfresturinn er liðin.
Skráningargjald:
Fullorðnir, ungmenni, unglingar: 5000kr
Börn: 4000 kr
Gæðinga og 100m skeið: 3500 kr
Ef skráning er mikil gæti mótið byrjað á föstudeginum 17. ágúst.
Hvenær mótið hefst og nánar um dagskrá verður kynnt þegar skráning liggur fyrir.
Við auglýsum jafnframt eftir starfsfólki á mótið (ritara, hliðarverðir, veitingasölu) og hesthúsplássum fyrir keppendur.