ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

77. ársþing ÍA var haldið 25. maí

77. ársþing ÍA var haldið 25. maí

28/05/21

56A9466
  1. ársþing ÍA var haldið í sal Tónlistarskólans Tónbergi síðast liðin þriðjudag kl. 20

Mæting var þokkaleg frá aðildarfélögum eða 26 þingmenn frá samtals 13 félögum. Gestir frá ÍSÍ, UMFÍ, bæjarstjórn ásamt bæjarstjóra og sviðstjóra Skóla og frístundarsviðs, heiðruðu þingið með nærveru sinni.

Þingið var hefðbundið ársþing með dagskrá samkvæmt lögum þess. Marella Steinsdóttir setti þingið og lagði til að Hildur Karen Aðalsteinsdóttir yrði kjörin þingforseti. Hildur Karen leysti sitt embætti vel þetta kvöld og stýrði þingi af röggsemi. Erla Ösp Lárusdóttir var kjörin þingritari sem einnig leysti sitt starf af með prýði.

Varaformaður UMFÍ afhenti bandalaginu platta í tilefni af 75. ára afmæli þess, sem var þann 3. febrúar s.l.

Alltaf þykir það hátíðlegt og skemmtilegt þegar kemur að dagskrárliðnum heiðranir. Í ár fengu 9 aðilar afhent bandalagsmerki fyrir störf sín í þágu íþróttamála á Akranesi. Er þeim þakkað fyrir hið mikla starf sem þau hafa lagt til handa íþróttum með einum eða öðrum hætti um leið og þeim öllum er óskað innilega til hamingju með merkið.

ÍSÍ Hafsteinn afhenti gullmerki Íþrótta og Ólympíusambands Íslands til þeirra Harðar Ó. Helgasonar og Hildar Karenar Aðalsteinsdóttur fyrir þeirra framlag til íþrótta og heilsueflandi mála.

Stjórnarkjör fór fram með hefðbundum hætti. Formaðurinn Marella Steinsdóttir gaf kost á sér til áframhaldandi formanns setu og hlaut hún kjör með lófaklappi salarinns. Varaformaðurinn Hörður Ó. Helgason gaf ekki kost á sér áfram og var honum þakkað sitt framlag til ÍA. Hrönn Ríkharðsdóttir gaf kost á sér til embætis varaformanns og var hún kjörin með lófaklappi salarinns. Aðrir úr stjórn gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn þau, Gísli Karlsson, Erla Ösp Lárusdóttir og Líf Lárusdóttir, Líf kemur inn sem aðalmaður í stjórn var áður varamaður.Trausti Gylfason gaf einnig kost á sér til áframhaldandi setu í varastjórn, Emilía Halldórsdóttir kom ný inn í varastjórn. Allt stjórnarfólk hlaut kjör með dynjandi lófaklappi salarins. Er þetta líklega í fyrsta skipti í sögu ÍA að konur gegni æðstu embættum bandalagsins á sama tíma, formaður, varformaður og framkvæmdastjóri allt konur.

Þeir sem hlutu bandalagsmerki á þessu þingi voru:

Arna Magnúsdóttir

Bjarni Þór Bjarnason

Borghildur Jósuadóttir

Magnús Óskarsson

Sigrún Ríkharðsdóttir

Sigurður Elvar Þórólfsson

Sigurður Sverrisson

Ólafur Þórðarson

 

Nokkrar myndir frá þinginu.

undefined

undefined

undefined

Edit Content
Edit Content
Edit Content