ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

76. Ársþing ÍA haldið í Tónbergi

76. Ársþing ÍA haldið í Tónbergi

08/06/20

IMG_6653 (Large)

76. Ársþing ÍA var haldið í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness fyrr í kvöld en þinginu hafði verið frestað sökum samkomubanns. Þingforseti var kjörinn Hörður Ó. Helgason. Ársskýrsla framkvæmdastjórnar ÍA 2019 var lögð fram af formanni ÍA, Marellu Steinsdóttur, og má skoða hana hér.

Þær breytingar urðu á stjórn ÍA að Dýrfinna Torfadóttir, Tjörvi Guðjónsson og Svava Huld Þórðardóttir gengu gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og Hallbera Jóhannesdóttir gaf ekki kost á sér til setu í varastjórn. Þeim eru öllum færðar bestu þakkir fyrir óeigingjarnt starf fyrir ÍA um árabil. Gísli Karlsson var valinn í stjórn en hann hafði áður verið í varastjórn en auk hans taka Hrönn Ríkharðsdóttir og Líf Lárusdóttir sæti í aðalstjórn. Ný í varastjórn voru kjörin þau Erla Lárusdóttir og Trausti Gylfason og eru þau boðin hjartanlega velkomin til starfa. Marella Steinsdóttir var endurkjörinn formaður og Hörður Ó Helgason, varaformaður.

Íþróttabandalag Akranes veitti tólf aðilum Bandalagsmerki ÍA fyrir vel unnin störf fyrir íþróttahreyfinguna á Akranesi. Þau sem heiðruð voru eru þau:

Ása Hólmarsdóttir, Brandur Sigurjónsson, Brynjar Sigurðsson, Haraldur Ingólfsson, Hjördís Hjartardóttir, Ingunn Ríkharðsdóttir, Ólafur Ingi Guðmundsson, Óskar Arnórsson, Steindóra Steinsdóttir, Svava Hrund Guðjónsdóttir, Þóranna Halldórsdóttir og Þórður Elíasson.

Þá tók annar varaforseti ÍSÍ, Hafsteinn Pálsson, til máls og bar fyrir kveðjur stjórnar ÍSÍ. Hann veitti ÍA viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ en sú viðurkenning er veitt fyrir fyrirmyndarstarf íþróttahéraða.

Edit Content
Edit Content
Edit Content