ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

74. ársþing ÍA verður fimmtudaginn 12. apríl

74. ársþing ÍA verður fimmtudaginn 12. apríl

02/03/18

Ía fáni

74. ársþing ÍA verður haldið fimmtudaginn 12. apríl nk. kl: 20:00  í Hátíðarsal ÍA að Jaðarsbökkum. Dagskrá þingsins verður samkvæmt lögum. 

Dagskrá ársþings ÍA er:

  1. a) Þingsetning
  2. b) Lögð fram kjörbréf fulltrúa
  3. c) Kosning þingforseta og ritara
  4. d) Kosning þriggja fulltrúa í kjörbréfanefnd og aðrar starfsnefndir þingsins eftir því sem ákvörðun er tekin um hverju sinni.
  5. e) Lögð fram ársskýrsla ÍA, félaga og sérráða. Ennfremur lagðir fram reikningar ÍA og sérráða ásamt áætlun um rekstur og fjárfestingar komandi árs. Umræður um skýrslur og reikninga og atkvæðagreiðsla.
  6. f) Afgreiðsla áætlunar um rekstur og fjárfestingar komandi starfsárs.
  7. g) Lagabreytingar. Kosning í laganefnd ef tillaga um lagabreytingar er lögð fram.
  8. h) Lagðar fram tillögur sem borist hafa til stjórnar.
  9. i) Ákvörðun um skattgreiðslur.
  10. j) Álit nefnda, umræður og atkvæðagreiðsla.
  11. k) Kosning fimm fulltrúa í framkvæmdastjórn ÍA, formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnandi. Formaður og varaformaður skulu kosnir sérstaklega.
  12. l) Kosning tveggja varafulltrúa í framkvæmdastjórn.
  13. m) Kosning fastra nefnda, endurskoðenda og fulltrúa á íþróttaþing ÍSÍ.
  14. n) Tilnefning fulltrúa í sérráð ef sérráð er starfandi.
  15. o) Önnur mál.
  16. p) Þingslit.

Veiting bandalagsmerkis ÍA

Framkvæmdastjórn ÍA vill nota ársþingið til að veita bandalagsmerki ÍA. Bandalagsmerki ÍA má veita aðilum sem starfað hafa vel fyrir bandalagið svo og þeim sem félagsstjórnir ÍA telja ástæðu til að heiðra eða veita viðurkenningu fyrir störf tengd íþróttamálum. Köllum við hér eftir tilnefningum frá ykkur um fólk sem unnið hefur ötullega að félagsstarfi innan ykkar félags. Tilnefningar berist eigi síðar en 29. mars n.k.

Framboð til stjórnar ÍA

Þeir sem óska eftir að vera í framkvæmdarstjórn ÍA skulu senda inn ósk þess efnis eigi síðar en 29. mars n.k. 

 Ársskýrsla

Ársskýrsla ÍA er í vinnslu, verður hún lögð fram rafrænt fyrir þing og hægt verður að skoða hana í tölvum og snjalltækjum á þinginu sjálfu. Í kjölfar þingsins verða prentaðar ársskýrslur í takmörkuðu upplagi til dreifingar til þeirra sem þess óska og til varðveislu á skjalasafni Akraneskaupstaðar.

 Önnur mál

Minnt er á að óski aðildarfélag eftir því að ákveðið málefni, sem samrýmist starfsemi ÍA, verði tekið fyrir á ársþinginu, skal ósk um slíkt komið á framfæri við aðalstjórn íþróttabandalagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir ársþing.

Fulltrúar á ársþingi

Ársþing ÍA er fulltrúaþing og hefur hvert aðildarfélag innan ÍA rétt til að senda tvo fulltrúa til þingsins óháð félagafjölda þess. Auk þess kemur einn fulltrúi fyrir hverja 100 félagsmenn. Hámarksfjöldi fulltrúa félags skal vera 10 fulltrúar. Eigi síðar en 29. mars verður gefið út hversu marga þingfulltrúa hvert félag hefur rétt á.

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content