ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Frábært tækifæri fyrir áhugasama

Frábært tækifæri fyrir áhugasama

14/02/17

#2D2D33

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 16. júní-1.júlí n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið íþróttastjórnun og ólympíuhreyfingin, en auk þess verður lögð áhersla á siðfræði og menntun.

Flugferðir, gisting og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Leitað er að einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en þriðjudaginn 28. febrúar n.k. Umsóknareyðublaðið er hér

Umsókn skal skilað á ensku á skrifstofu ÍSÍ og skulu fylgja henni tvær passamyndir. 

Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sími 514 4000, ragnhildur@isi.is.

Einnig má benda á heimasíður IOA www.ioa-sessions.org/ og www.ioa.org.gr

 

Edit Content
Edit Content
Edit Content