27 sundmenn frá sundfélagi Akranes tóku þátt í IRB móti helgina 12.-14. maí.
Ungu krakkarnir okkar voru í meirihluta á mótinu og sýndu þau vel að veturinn hefur verið vel nýttur á æfingum, þau bættu sig mikið í sundinu og voru okkur til mikilla sóma á bakkanum. Yfir helgina þá bættu þau sig samtals 118 sinnum og af því voru 84 bætingar hjá unga fólkinu okkar, 12 ára og yngri.
Íris Petra Jónsdóttir stóð sig mjög vel og bætti tímann sinn í öllum sundum og sérstaklega vel gerði hún í 100m baksundi og 200m bringusundi þar sem hún náði lágmarki á Aldursflokkameistaramót íslands sem haldið er í sumar.
Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Sóley Saranaya Helgadóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Freyja Hrönn Jónsdóttir, Guðbjarni Sigþórsson, Tómas Týr Tómasson og Auður María Lárusdóttir bættu sig líka í öllum sínum greinum.
Magnea Ósk Lárusdóttir, Eva Júlíana Bjarnadóttir og Dagbjört Birna Magnúsardóttir tóku þátt í sínu fyrsta móti utan Akraness, þær syntu 25m skriðsund, baksund og bringusund og stóðu sig eins og hetjur, syntu bæði vel og hratt. Greinilegt að þessar flottu stelpur hafa verið duglegar á æfingum í vetur.
Næsta mót hjá Krökkunum í SA er Akranesleikar 2. -4. júní.
Verðlaun á IRB mótinu hlutu :
Gull
Kristján Magnússon 200 baksund
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir 50, 100 og 200 bringusund
Silfur
Ingibjörg Svava Magnúsardóttir 400 skriðsund
Kristján Magnusson 100 bringusund
Ágúst Júliusson 50 flugsund
Alex Benjamin Bjarnasson 800 skrið
Brons
Kristján Magnusson 100 flugsund & 100 fjórsund
Ágúst Júliusson 50 skriðsund
Ngózi Jóhanna Eze 50 skiðsund & 1500 skriðsund
Anita Sól Gunnarsdóttir 50 baksund
Enqrique Snær Llorens Sigurðsson 100 bringusund
Rafael Andri Williamsson 50 baksund & 50 flugsund