ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

UMFÍ úthlutar styrkjum

UMFÍ úthlutar styrkjum

11/05/20

170616_umfi_logo_lowres_midja_kubbur_5

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur úthlutað rétt tæpum 8,3 milljónum króna til 135 verkefna. Á meðal verkefna sem hlutu styrki nú voru 6 verkefni á Akranesi.

Upplýsingar um alla styrkina má sjá á vef UMFÍ.

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf aðildarfélaga UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.

Úthlutun úr Fræðslu- og verkefnasjóði fer fram tvisvar á ári, sem næst 1. maí og 1. nóvember ár hvert og var þetta vorúthlut sjóðsins.

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Edit Content
Edit Content
Edit Content