ÆFINGATÖFLUR

VALMYND

Styrkir Akraneskaupstaðar til íþróttafélaga

Styrkir Akraneskaupstaðar til íþróttafélaga

26/04/18

#2D2D33

Akraneskaupstaður veitir 15 milljónir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi á árinu 2018. Markmiðið er að styðja virk íþrótta- og tómstundafélög á Akranesi til að halda uppi öflugu íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Styrktarsjóðurinn hækkar í ár um 30% en árinu 2017 voru veittir styrkir að fjárhæð kr. 10,9 milljónir króna. Tilgangur styrkjanna er að veita fjárhagslegan stuðning til þjálfunar og leiðsagnar barna og unglinga á aldrinum 3 – 18 ára. Skilyrði er að félagið hafi starfað í a.m.k. 2 ár og staðið skil á lögformlegum skyldum sínum. 

Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Styrktímabil er 1. janúar – 31. desember 2017. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2018. Nánari upplýsingar veitir skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða með tölvupóst á netfangið skoliogfristund@akranes.is.

Frétt af vef Akraneskaupstaðar: https://www.akranes.is/is/frettir/styrkir-til-ithrotta-og-tomstundafelaga-a-akranesi-9

Edit Content
Edit Content
Edit Content