Samþykkt var að taka upp hegðunarviðmið ÍSÍ á 75. ársþingi ÍA 2019.
Hegðunarviðmið fyrir þjálfara
- Komdu fram af virðingu
- Komdu eins fram við alla iðkendur óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
- Berðu virðingu fyrir einstaklingnum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.
- Berðu virðingu fyrir mótherjum, foreldrum/forsjáraðilum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki og stuðlaðu að því að iðkendur geri slíkt hið sama.
- Vertu heiðarleg(ur)
- Farðu eftir reglum íþróttagreinarinnar, haltu á lofti heiðarleika (fair play) og hvettu iðkendur til að gera það líka.
- Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
- Gættu trúnaðar og sýndu aðgætni við meðferð og vörslu persónuupplýsinga. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera af brýnni nauðsyn og í samræmi við lagaboð.
- Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
- Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar
- Allir iðkendur eiga skilið að fá athygli og jöfn tækifæri.
- Leggðu þig fram þannig að iðkendur fái sem mest út úr æfingunni.
- Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur.
- Ýttu undir heilbrigðan lífsstíl með góðu fordæmi.
- Berðu virðingu fyrir þjálfarastarfinu
- Gerðu kröfur til þín varðandi málfar, hegðun, stundvísi, undirbúning og kennslu/þjálfun.
- Sýndu íþróttinni og félaginu virðingu og virtu reglur.
- Leggðu metnað þinn í starfið og leitaðu leiða til að auka þekkingu þína.
- Skipuleggðu starfið með tilliti til getu og þroska iðkenda.
- Vertu óhræddur við að leita eftir samstarfi við aðra þjálfara eða sérfræðinga.
- Taktu leiðtogahlutverk þitt alvarlega og nýttu stöðu þína á uppbyggilegan hátt.
- Haltu iðkendum og aðstandendum upplýstum um þjálfunina.
- Það sem er iðkandanum fyrir bestu
- Gættu að öryggi í umhverfi og að aðbúnaður hæfi aldri og þroska iðkenda.
- Settu heilsu og heilbrigði iðkenda á oddinn og varastu að setja þá í aðstöðu sem ógnað getur heilbrigði þeirra.
- Sýndu athygli og umhyggju þeim sem orðið hafa fyrir meiðslum og þeim sem leita til þín vegna andlegrar vanlíðunar.
- Forðastu að koma þér í þá stöðu að vera einn með iðkanda.
- Ofbeldi er ekki liðið í íþróttahreyfingunni!
- Vertu vakandi og beittu þér gegn öllu ofbeldi: líkamlegu, kynferðislegu og andlegu.
- Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti.
- Forðastu líkamlega snertingu við iðkendur, nema þar sem hún er nauðsynlegur hluti þjálfunarinnar.
- Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.
Hegðunarviðmið fyrir iðkendur
- Komdu fram af virðingu
- Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
- Berðu virðingu fyrir einstaklingum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.
- Sýndu íþróttinni virðingu og virtu reglur hennar, venjur og siði.
- Berðu virðingu fyrir andstæðingum, dómurum, foreldrum/forsjáraðilum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki.
- Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft sem er laust við líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi.
- Vertu heiðarleg(ur)
- Farðu eftir reglum íþróttarinnar og komdu fram af fullkomnum heilindum og háttvísi gagnvart sjálfum þér og öðrum.
- Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
- Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
- Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar
- Berðu ábyrgð á eigin hegðun.
- Gerðu þitt besta þannig að þú fáir sem mest út úr æfingunni.
- Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur og hafðu það hugfast að þú ert fyrirmynd yngri iðkenda.
- Tileinkaðu þér heilbrigðan lífsstíl.
- Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með öðrum hætti.
Hegðunarviðmið fyrir stjórnarmenn og starfsfólk
- Komdu fram af virðingu
- Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun, stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.
- Berðu virðingu fyrir skoðunum annarra.
- Vertu heiðarleg(ur)
- Farðu eftir reglum íþróttahreyfingarinnar, haltu á lofti heiðarleika (fair play) og hvettu félagsmenn til að gera það líka.
- Stuðlaðu að jákvæðu og íþróttalegu umhverfi sem er laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.
- Gættu fyllsta trúnaðar þar sem við á.
- Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
- Forðastu eða tilkynntu fjárhagslega og persónulega hagsmunaárekstra.
- Vertu félagsmönnum góð fyrirmynd
- Vertu ávallt til fyrirmyndar varðandi hegðun og framkomu, bæði innan félags og utan.
- Virtu lýðræðisreglur og gagnsæi við ákvarðanatöku og stjórnaðu samkvæmt reglum um ábyrga fjármálastjórn.
- Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur.
- Leggðu metnað í starfið og berðu ábyrgð á eigin hegðun.
- Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.
- Berðu virðingu fyrir starfsemi félagsins
- Þekktu lög og reglur félagsins.
- Stattu vörð um anda og gildi félagsins.
- Hafðu lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
- Sýndu íþróttum virðingu og virtu reglur þeirra, venjur og siði.
- Sýndu öllum iðkendum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og starfsfólki virðingu og stuðlaðu að því að iðkendur og félagsmenn geri slíkt hið sama.
- Þér ber skylda til að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.
Hegðunarviðmið fyrir foreldra/forsjáraðila
- Mundu að barnið þitt er í íþróttum sín vegna, en ekki þín vegna.
- Hvettu barnið til þátttöku í íþróttum, en ekki þvinga það.
- Hvettu öll börn, ekki bara þitt.
- Sýndu jákvæðni, líka þegar á móti blæs.
- Berðu virðingu fyrir öllum iðkendum, dómurum, sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki.
- Berðu virðingu fyrir réttindum barna, hvert barn er einstakt.
- Mundu að þjálfarinn þjálfar en foreldrar hvetja.
- Upplýstu um stríðni, einelti eða áreitni.
- Sýndu starfi félagsins virðingu og vertu virkur þátttakandi.
- Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða öðrum hætti.
- Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.
- Þér ber að tilkynna til barnaverndaryfirvalda ef grunur leikur á að barn hafi verið vanrækt, því misþyrmt eða búi við aðstæður sem geta lagt heilsu þess og þroska í hættu.