Það styttist í árlegt þorrablót Skagamanna, sem nú verður öðruvísi en alls ekki verra síður en svo.
Þau frábæru veitingahús okkar Skagamanna Gamla Kaupfélagið og Galito ætla að bjóða upp á Þorra-, -bakka,-öskjur eða smáréttaveislu Hvað sem fólk vill panta hjá þeim og allt á hófsömu verði.
Gamla Kaupfélagið – Auglýsing á Þorraöskjum
Galíto – Auglýsing á Þorrabökkum og smáréttaveislu
Hægt er að fá heimsent !! Aðildarfélög ÍA ætla að sjá um heimsendingar fyrir sanngjarnt verð eða kr. 1.500,- sem rennur beint til þess félagas sem heimsending er pöntuð hjá.
Þau aðildarfélög ÍA sem taka munu þátt í heimsendingu auglýsa á sínum miðlum allt varðandi það.
Aðgangur að streymi verður selt í gegnum tix.is
Nú er um að gera að rífa upp stemmingu og panta mat heim fyrir þorrablótið – pöntunartími er til og með 19. janúar.