Framhaldsaðalfundur Dreyra 9. febrúar 2018

 Dreyrafélagar ! Framhaldsaðalfundurinn verður  föstudaginn 9. febrúar  2018 í félagsheimilinu  á Æðarodda. Fundurinn hefst kl. 20.   Dagskrá. Ársreikningur lagður fram til samþykktar. Önnur mál. Kynning á starfi félagsins fyrir árið 2018.   Nýir  félagar velkomnir. Félagsmenn hvattir til að skrá sig á netfangalista félagsins á dreyri@gmail.com Sjáumst föstudagskvöldið 9. febrúar í Oddanum. Stjórnin.

Kynningarfundur Æskulýðsnefndar Dreyra.

Æskulýðsnefnd Dreyra verður með kynningarfund á dagskrá vetrarins á fimmtudaginn 25. janúar n.k.  Fundurinn verður frá kl. 20 til 21 í félagsheimilinu Æðarodda. Við hvetjum alla FORELDRA , BÖRN ,UNGLINGA OG UNGMENNI til þess að mæta   Við munum fara yfir vetrarstarfið og ræðum saman um hvað er hægt að gera skemmtilegt og gagnlegt á […]

Aðalfundur Dreyra 28. nóvember 2017.

Aðalfundur hestamannafélagsins Dreyra verður haldinn í Æðarodda þriðjudaginn 28. nóvember 2017. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins. Dagskrá aðalfundar skal vera samkvæmt 7. gr: ” …. -Fundarsetning og kjör starfsmanna fundarins -Skýrsla stjórnar -Gjaldkeri leggur fram drög að reikningum félagsins. Ársreikningur verður lagður fram til samþykktar á framhaldsaðalfundi eftir hver áramót. -Skýrslur nefnda. […]

Uppskeruhátíð LH – Jakob Svavar er knapi ársins

Uppskeruhátíð Landssambands Hestamannafélaga (LH) var haldin s.l laugardag. Á hátíðinni voru veittar  viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu.  Dreyrafélaginn Jakob Svavar Sigurðsson fékk stærstu viðurkenningu kvöldsins þegar hann var valinn Knapi ársins 2017. Hann var einnig valinn íþróttaknapi ársins og tilnefndur í 2 öðrum flokkum.  Glæsileg uppskera og árangur hjá Jakobi á þessu ári enda […]

Uppskeruhátíð LH – Dreyrafélagar með 4 tilnefningar.

Uppskeruhátíð hestamanna fer fram þann 28. október n.k á Reykjavík Hilton Nordica, Hátíðin er haldin af Landsambandi hestamanna og félagi hrossabænda. Nú eins og undanfarin ár eru bestu knapar og hrossaræktendur landsins verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína á árinu. Verðlaunahafar á uppskeruhátíð 2016. Jakob var gæðingaknapi árins. Dreyrafélaginn og heimsmeistarinn í tölti, Jakob Svavar Sigurðsson er […]

Norðurálsmót Dreyra 2017 – Úrslit

Hið árlega íþróttamót hestamannafélagsins Dreyra, Norðurálsmótið, var haldið á félagssvæði Dreyra á Æðarodda við Akranes 19. og 20. ágúst 2017. Mótið var haldið í sól og fallegri ágústblíðu. Fjöldi skráninga var um 160 . Mótstjóri var Belinda Ottósdóttir og yfirdómari var Logi Laxdal. Keppnisvöllurinn sem lokið var við í fyrra reyndist frábærlega og mál manna […]

Jakob er heimsmeistari í tölti !

Heimsmeistaramót íslenska hestsins fór fram í Hollandi í síðustu viku. Mótið er haldið á tveggja ára fresti. Okkar maður Jakob Svavar var valinn í landsliðið til keppni í tölti og fjórgangi á hestagullinu Gloríu frá Skúfslæk. Þau urðu 8.  í fjórgangi  og gerðu sér svo lítið fyrir og sigruðu síðan töltið með yfirburðum (8.94) og […]

Norðurálsmót Dreyra 19. – 20. ágúst 2017

Norðurálsmót – Hestaiþróttamót Dreyra 19.-20. ágúst 2017. Íþróttamót hestamannafélagsins Dreyra verður haldið í Æðarodda, við Akranes dagana 19.-20. ágúst n.k. Hvenær mótið hefst og nánar um dagskrá verður kynnt þegar skráning liggur fyrir. Upplýsingar verða kynntar á vefmiðlum hestamanna. Keppnisgreinar: Fimmgangur. 1. flokk, 2. flokk minna vanir, ungmennaflokk, unglingaflokki opinn flokkur Fjórgangur í 1. flokk, […]

Jakob Svavar tvöfaldur Íslandsmeistari.

Íslandsmótið í hestaíþróttum var haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu 6. til 9. júlí 2017. Hestamannafélagið Geysir sá um mótahaldið. Á mótinu varð  Dreyrafélaginn knái Jakob Svavar Sigurðsson 3. í tölti á Gloríu frá Skúfslæk, og Íslandsmeistiari í fjórgangi og í slaktaumatölti á Júlíu frá Hamarsey.  Til hamingju Jakob Svavar. 🙂 Jakob og Júlía frá Hamarsey. […]

Úrslit af Fjórðungsmóti Vesturlands

Fjórðungsmót Vesturlands haldið í Borgarnesi fyrstu helgina í júlí. Okkar knapar og hross stóðu sig vel á mótinu þar sem mikil fjöldi af úrvals keppnishestum og knöpum tóku þátt. Einnig tóku 10 félagsmenn Dreyra þátt í vinnu á mótinu og vill stjórn félagsins senda þeim sínar bestu þakkir fyrir framlagið.  Mótið er haldið af hestamannafélögunum […]